Aðförin í öndvegi - Hádegismálþing um fjölbreyttar samgöngur og borgarskipulag
Orkuveita Reykjavíkur Orkuveita Reykjavíkur
95 subscribers
44 views
1

 Published On Streamed live on Sep 18, 2024

Tökum samtalið um samgöngumál í tilefni af samgönguviku.
🌿 Elliðaárstöð, Orka náttúrunnar og Veitur standa fyrir málþingi í hádeginu miðvikudaginn 18. september á Á Bístró í Elliðaárstöð þar sem umferð hjólandi og gangandi er einmitt í öndvegi. Boðið verður upp á súpu, brauð og kaffi.
🌿 Fundarstýra er Rún Ingvarsdóttir, samskiptastýra Veitna og verður málþinginu streymt hér á Facebook-eventinum.
🌿 Vinsamlegast skráið ykkur hér: https://forms.gle/5Br1985aGKqVK6pt7
Fjölbreytt erindi um vistvænar samgöngur og borgarskipulag út frá ýmsum hliðum.
⚡️ Mannlíf, byggð og bæjarrými.
Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt, Teiknistofan Stika
Leiðbeiningar um sjálfbært skipulag og vistvænar samgöngur í þéttbýli voru gefnar út í fyrra. Leiðbeiningarnar voru samstarfsverkefni Skipulagsstofununar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH). Vandað skipulag og hönnun bæjarrýma er mikilvægur þáttur þess að stuðla að sjálfbærri þróun og lífsgæðum fólks. Með samþættingu góðrar byggðar og vistvænna samgangna má móta eftirsóknarvert umhverfi til lífs og starfa og um leið ná fram ávinningi í loftslagsmálum. Annar af höfundum skýrslunnar, Magnea Guðmundsdóttir, ætlar að veita okkur innsýn í vinnuna og niðurstöður.
⚡️ Hlaupið í skarðið: deilihagkerfisvætt örflæði sem almenningsamgöngur í smærri borgum.
Eyþór Máni Steinarsson, framkvæmdastjóri Hopp
Virka deilihagkerfisvæddar samgöngur best í smærri byggðum og geta þær komið inn sem "kítti" í almenningsamgöngur smærri byggða þar sem borgir geta ekki eða vilja ekki fjárfesta í öðrum lausnum á borð við BRT, léttlestir, eða neðanjarðarlestir?
⚡️ Bílablindan í borginni.
Edda Ívarsdóttir, borgarhönnuður hjá Pláss
Hvaða áhrif hefur bílablindan haft á samfélagið, daglegt líf og umhverfi? Hvernig hafa borgir og bæjarfélög mótast eftir þörfum bíla? og hvaða ráð höfum við til að breyta þessu?
Verið öll hjartanlega velkomin.

show more

Share/Embed