2023 Afmælisferð 4x4 Húna
Lovely Bear Lovely Bear
546 subscribers
671 views
29

 Published On May 26, 2024

40 ára afmæli 4x4 Húna var í lok desember 2022, en við ákváðum að skella okkur í jeppaferð í mars 2023 til að halda upp á þennan viðburð. Virkilega skemmtileg ferð í góðu veðri og í afbragðs félagsskap. Fórum upp Blöndudal, yfir Kolkustíflu og inn á Kjalveg að Hveravöllum. Eftir það voru farnar allskyns krúsidúllur til að finna nýja leið upp á Langjökul. Fórum svo yfir Langjökul, upp á Geitlandsjökul, yfir Slúnkaríkið og upp á Skjaldbreið. Erum því orðin alvöru jeppamenn skv. skilgreiningu ýmissa góðra manna. Gistum í Myrkholti í Bláskógarbyggð og nutum góðra veitinga í boði klúbbsins (afmælisbarnsins). Heimleiðin var áfram í blíðuveðri, fórum upp á Hrunamannaafrétt, kíktum á Svínánesskála, Leppistunguskála og Setrið. Keyrðum utan í Hofsjökli og að glæsilegum íshelli sem var virkilega gaman að sjá, algjört náttúruundur.

show more

Share/Embed